eða eitthvað svoleiðis... hehe ekki svo sleip í dönsku :þ
En sem sagt laugardagur og loksins tókst okkur að muna eftir danstímanum kl 10 í morgun... klikkuðum síðustu tvo laugardaga :S en í morgun vorum við Siggi bæði með reminder í símunum okkar og svo sendi Hildur Ýr danskennari okkur líka SMS í morgun til að minna okkur á þetta hehehe Hún er sem sagt ein af tvíburamömmunum 6 sem ég hitti reglulega... við vorum þarna með 10 af 12 tvíburum, foreldrar einna tvíburanna eru í New York þessa helgina :o)
Þetta gekk allt vel, þau þorðu aðeins að taka þátt og eru búin að tala mikið um þetta í dag.
Svo voru bara rólegheit restina af deginum, sótti Victoria´s Secret dótaríið sem ég pantaði með Möllu systur um daginn (tengdaforeldrar hennar voru í USA og komu með þetta heim... enginn tollur heheh) og svo kom Dagur Elís til okkar í pössun. Átti að vera hér til kl 21 en við buðum honum að gista og nú eru þau öll 3 í Ingibjargar herbergi að reyna að sofna... eða sem sagt að reyna að sofna ekki, enda sennilega öll í sínu hvoru herberginu en við ætlum að prófa hehehe
Þau fengu McDonald´s í kvöldmatinn og við Siggi fengum KFC... og nú á að fara að horfa á nýjustu Harry Potter myndina á flotta nýja flakkaranum :o)
Lovely.....
Farin að reyna að tjónka við börnin hehehe
kv
kr.e.
Saturday, September 22, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Ég verð að hitta flakkarann ykkar, það er bara ekki spurning !!!!!! Verst að ég kann ekki að "tala" við hann, en það eru eflaust einhverjir sem kunna það nálægt mér ;) Góða nótt
Takk fyrir pössunina, DEG hálf slappur í gær en svaf vel í nótt án mikils hósta. Vona að þetta hafi allt gengið vel, heyrumst!
P.s. ætlarðu ekki að reyna að koma annað kvöld til Írisar??
Post a Comment