Thursday, September 20, 2007

hmmmm... ekkert blogg í gær og engar hugmyndir í dag.....

Kom heim í kvöld og sá þá mann uppi á þaki, var að tengja okkur við diskinn sem elskulegir nágrannar okkar eiga :o) hann er búinn að draga víra í réttar áttir og nú eigum við bara eftir að fá einhverja græju og þá erum við komin með Sky og að mér skilst um 160 stöðvar vúhú....
Svo keypti Siggi flakkara sem hægt er að tengja beint við sjónvarpið jeijei og svo sótti hann fulltfullt af myndum í vinnuna og Gray´s Anatomy þætti, reyndar seríu 3 en hann ætlar að redda seríum 1 og 2 fyrir mig líka :o)

Sem sagt.... get legið fyrir framan sjónvarpið næstu vikurnar hehehhe

verð hugmyndaríkari í næsta bloggi.... vonandi
kv
krizzza

7 comments:

Anonymous said...

Við erum með slatta af dóti á okkar flakkara, þar á meðal alla friends þættina, ef ykkur vantar :D

Kv.
Fjóla

Kristín E. said...

úúúú spennó :o) fáum að tengja okkur saman fljótlega :o)

Anonymous said...

Endilega tengjast mér líka, mig vantar efni á minn flakkara, ég er búin að horfa á nánast allt sem er á okkar. Hér er það rúv sem ræður ríkjum, eins og alþjóð veit, bara ein stöð en ekki 160 :S

Anonymous said...

Ef ykkur vantar barnaefni - þá eigum við FULLT af því á flakkaranum okkar.

Kristín E. said...

Glæsilegt :o) nú er bara að finna dag fyrir flakkarana okkar að hittast hehehe
Hlakka til :o)

Anonymous said...

hey sætust. taktu bara flakkarann með þér til Helgu á sunnudagskv. og ég skal skella inn á þig seríu 1 og 2 af Greys og svo á ég fullt fullt meira gaman ;)
kv. Lóa

Kristín E. said...

júhú.... takk fyrir það Lóa beib :o)