Wednesday, March 5, 2008

Miðvikudagur :o)

Smá skrif...... annars lítið að frétta síðan um helgi.....
Saumó í gær, tvíburamömmurnar. Rosalega fínt að spjalla saman í rólegheitunum. Sigrún gaf okkur hráfæði :o) hún var á námskeiði um daginn, kom mér verulega á óvart :o) Hrikalega góð kaka sem hún gaf okkur, þarf að redda uppskriftinni :þ

Góðar fréttir í dag, Íris og Jónas (sem var veislustjóri í brúðkaupinu okkar) voru að kaupa sér íbúð í Kórahverfinu, ekki langt frá lóðinni þar sem húsið okkar mun rísa... alltaf gott að fá nýtt fólk í Kópavoginn ;). Ekki er verra að Þorlákur, Ingibjörg og Anton Oddur sonur þeirra eru frábær saman, léku sér einu sinni í um 5 tíma hér heima og það heyrðist ekki í þeim!!!

Jæja... ætla að fá mér smá nasl og fara svo að sækja krílin....
kv
Kristín

3 comments:

Anonymous said...

Koss til krílanna frá okkur og takk fyrir öll kommentin, lífgar upp á hversdaginn. Kv affí

Anonymous said...

Já það er gott að búa í Kópavogi (segir sú sem býr alveg á mörkum Kóp og Rey!!) KV. Malla syssss

Anonymous said...

Gott að fá góða nágranna. Bestu kveðjur úr kuldanum. Þín frænka Ádda.