Wednesday, December 16, 2009

Jólasveinarnir

Stúfur kom þriðji og færði þeim systkinunum 2 jólastjörnur og jólalímmiða í glugga :o)

Þvörusleikir kom fjórði með playmó handa stóru systkinunum... hann fékk víking og hún fékk regnboga-dís.

Pottaskefill sá fimmti, átti 2 sippubönd í pokanum sínum handa Þorláki og Ingibjörgu.

Spurning hvað Askasleikir finnur í sínum poka :þ

Margrét hefur ekki enn sett sinn skó í gluggann... enda skilur hún lítið í þessum jólasveinum þetta árið :þ

kv
Krizzza

2 comments:

Anonymous said...

Er Diddi ekki enn búinn að láta þig vita um pokann til ykkar frá mér? Hann kom fyrir einum tveimur vikum :) Þórdís frétti fyrst af þessu í gær, svona er stressið hjá sumum :)Heyrist nóg að gera og húsmóðirin dugleg. Bestu kveðjur.

Kristín E. said...

Ég frétti af pokanum í dag... hringdi í Sigyn til að bjóða í skírn :þ reyni að renna við hjá þeim á morgun eða mánudag :o)