Wednesday, March 4, 2009

LoksinsLoksinsLoksins :o)

Já elsku kæru tryggu lesendur síðunnar, það kom að því... ég er að blogga.

Sit hér í tölvu hjá Möllu systur og fékk að laumast í tölvuna, er í fríi í dag... á svo hrikalega mikið frí, aumingja ég hehehe, og Malla er farin að vinna hálfan daginn þannig að það er eðalfínt að kíkja til hennar og sníkja smá nasl :þ

En ástæðan fyrir þessu bloggleysi mínu er einfalt, síðustu 5 vikur hafa farið í hálfgerð veikindi hjá mér, er búin að æla og æla og vera hundslöpp og þreytt.... en af yndislegri ástæðu. Við Siggi komumst að því 20. janúar að ég er ólétt!!! Já ekki lýg ég því..... fengum smá sjokk þegar prufan varð jákvæð og komst strax í sónar daginn eftir (af því að ég þekki svo dásamlega lækna :o) ) og var þá komin 6 vikur og 2 daga á leið... og ekki í minna sjokki.
Við fórum í glasameðferð í október sem tókst ekki, áttum að fara aftur í mars en í byrjun janúar sendi ég þeim mail og afpantaði meðferðina, treysti mér bara ekki í fleiri meðferðir í bili.... en þessi meðferð hefur haft svona fín áhrif á okkur og við svona hrikalega heppin að þetta bara gerðist heima!!! Ótrúlega gamaldags reyndar hehehe

Í morgun fór ég svo í sónar, komin 12 vikur og 2 daga og áætluð mæting nýjasta fjölskyldumeðlimsins um miðjan september. Í kvöld ætlum við svo að segja tvíbbalingunum fréttirnar, þau eru alveg undrandi á því að mamma sé enn með gubbupest, af hverju ég sé alltaf lasin.... og reyndar af hverju bumban mín sé svona stór, búin að fá spurninguma "ertu kannski með barn í bumbunni" nokkrum sinnum heheheh en hef svarað neitandi til þessa.

Við Siggi erum sem sagt alveg í skýjunum.... þegar ég trúi þessu :þ og krepputal og annað leiðindi fer bara inn um annað og út um hitt!!!

Nú bara vona ég að heilsan fari að skána, svo ég geti farið að halda heimili aftur (Sigginn þarf að sjá um ALLT á heimilinu þar sem ég ligg bara eins og klessa eftir að ég kem heim úr vinnunni :S) og þá kannski get ég líka farið að hitta fólk aftur, búin að missa af saumaklúbbum, matarboðum og partýi vegna slappleika..... en af góðri ástæðu.

Jæja.... ætla að reyna að verða duglegri að blogga næstu vikur
Takk fyrir þolinmæðina
kv
Kristín E.

ps... Ádda, bíð spennt eftir súkkulaðisírópinu :D

9 comments:

Anonymous said...

Innilega, innilega til hamingju! Þetta eru alveg frábærar fréttir. Ég vona þó að þér fari að líða betur. Æ, hvað þetta er gaman :)

Vona að allt gangi vel og hlakka til að heyra af viðbrögðum Ingibjargar og Þorláks við góðu fréttunum.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Frábært og ekkert annað. Þetta er örugglega hluti af velferðarpakka vinstri stjórnarinnar. Farðu vel með þig frænka og njóttu þess að vera til.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Diddi

Anonymous said...

Hehe, hluti af velferðarpakka vinstri stjórnar, Diddi þú ert engum öðrum líkur!!!
En ég vildi bara óska þér enn og aftur til hamingju og ykkur öllum og benda þér á systir góð að í kvöld er keppt í slaktaumatölti í meistaradeild VÍS, sá það í blaðinu :)

Anonymous said...

Diddi og Malla, þið eruð nú alveg met - aðgerðapakki og slaktaumatölt... haha...

Enn og aftur til lukku, mikið var nú gaman að heyra hjartsláttinn í gær, þegar ég frekar stóra systir ruddist inn í skoðunina ;)

Ég er ekki búin að láta Helgu og Dag vita, má það semsagt hér með er það ekki??

Kristín E. said...

HæHæ... það má bara láta alla vita núna, Þorlákur og Ingibjörg fengu fréttirnar í gærkvöldi :o)

Slaktaumatöltið minnist Malla á af því að ég missti það út úr mér hjá henni að það finnist mér fyndnasta hestaíþróttin :þ

Já og Diddi... þetta gekk sennilega svona vel af því að ég gifti mig víst á afmælisdegi Steingríms J.

Heyrumst :o)

Anonymous said...

Já svona fer þetta stundum. Við ætlum að grípa fram í fyrir skaparanum, en hann hefur bara önnur plön!!!! Frábært og ansi gott að þetta verði í september. Ekki mörg afmæli þá. Svo þú náðir í skottið á henni litlu systur og þið bara með bumbu á sama ári. Mikið er ég nú fegin að vera ekki ólétt---gott að eiga barnabarn og stórar dætur:):):) Nóg, sem heldur mér vakandi á nóttunum :):):) Sem sagt--innilega til hamingju og súkkulaðisírópði verður keypt í næstu BS-ferð, og sett í pakkann til Ástu!!! Knúsaðu Sigga og pottormana. Þín Ádda, og bestu kveðjur frá Margréti, með kvef í sjónvarpsstuði.

Anonymous said...

Ég er búin að vita þetta í nokkrar vikur og vá hvað ég varð glööööð að heyra þetta!!!! Innilega til hamingju elsku Kristín og Siggi :) Þetta er svo frábært. Litlu grísirnir okkar verða flottir saman og næstum því jafn gamlir (grísirnir sko, ekki endilega strákarnir, það kemur í ljós bara)
Vona að þú farir að losna við þessa ælu ;)
Knús og kossar til ykkar

Anonymous said...

mér finnst þetta bara alveg hreint æðislegar fréttir, til hamingju! :)

Aldís

Anonymous said...

ERtu með óléttu í puttunum!!! Það koma bara aldrei neinar fréttir á bloggið :) Farðu nú að setja inn myndir og etthvað spennandi. Bestu kveðjur þín Ádda frænka.