Algjört bjútí... ekki spurning. Sáum hann líka aðeins í dag, Siggi var að laga tölvu fyrir þau og við fengum að fara með og skila henni :D.. notum öll tækifæri til að hitta stubbinn.
Síðustu helgi fórum við í útilegu með fullt af tvíburaforeldrum, vorum samtals 8 fullorðnir og 8 4. ára börn, 6 strákar og 2 stelpur. Ekkert smá gaman. Ætluðum að fara í Hraunborgir og tjalda þar en þar sem þetta var stærsta ferðahelgi ársins og veðurspáin góð þá leit það ekki sérstaklega vel út... en svo vel vildi til að foreldrar Sigurlaugar eiga bústað við Gíslholtsvatn (aðeins lengra en Þjórsárbrú) og hann var laus þessa helgina, þannig að á föstudegi fóru Sigurlaug, Palli og synir með fellihýsið sitt, Guðrún, Bjarki og synir með fellihýsið sitt og svo Ágústa, Raggi og börn sem fengu að gista inni í bústaðnum, á staðinn :o). Ég var á 22 tíma vakt á föstudeginum en náði að sofna um leið og ég kom heim á laugardagsmorgninum og svaf til 12:30 og Siggi skellti sér svo í búðina meðan ég tók mig til og svo bara allt út í bíl og af stað. Komin af stað um kl 14:30 sem mér finnst nú bara ansi gott.
Þetta var yndisleg helgi, frábær aðstaða í bústaðnum og tjaldið okkar var bara ekki svo slæmt... í minningunni var það orðið hálf sjúskað en það var bara rennilásinn á fortjaldinu sem er hálf ónýtur á annarri hliðinni, en Ásta Birna saumaði hann saman fyrir nokkrum árum þegar þau fengu tjaldið lánað :o).
Börnin höfðu nóg við að vera, voru ótrúlega góð saman. Risastórt trampólín, sandkassi, dúkkuhús og svo auðvitað nóg af náttúru... fín hæð við húsið þar sem hægt var að fara í fjallgöngu, sáum þau alltaf frá bústaðnum og þetta eru bara mosavaxnar þúfur og ekkert grjót þannig að þó þau væru alltaf að detta í þúfunum þá héldu þau bara áfram :o). Svo var brekkan niður að lóðinni notuð sem rennibraut :o) yndislegt.
Þetta var sem sagt frábær helgi og vonandi getum við sem fyrst farið aftur með tvíburaforeldrunum í útilegu... og vonum að Hildur og Sigrún komist þá líka með.
Jæja... ætla að fara að leggja mig... var að setja yfir 400 myndir inn á barnanetssíðuna, 7 mánaða skammtur takk fyrir!!! Njótið vel og vonandi munið þið lykilorðið... það er millinafnið hans pabba en ekki með stórum staf.
Farin í frí.... efast um að ég komist í tölvu í Mývó en fæ að stelast í pabba tölvu á Akureyri ef ég verð eitthvað þar.
Hafið það gott
kv
Kristín
13 comments:
Góða ferð norður á bóginn. Vonandi sjáumst við eitthvað, alla vega eruð þið ávallt velkomin í heimsókn:)
kv. Helga og Nesgengið
Helga... stefnan verður pottþétt tekin á heimsóknir í AÐAL-dalinn, ekki spurning.
Heyrum í ykkur :o)
Mikið var gott að þú fékkst smá hreyfingu við að ýta fjólublá í gang áðan, hehehehe. Ég fékk hálfgert flash back, manstu eftir rauðu hondunni sem var án startara heilt sumar og gott betur en það !! Góða ferð norður ;)
Góða ferð í sveitina, hafið það gott!
Góða ferð og njótið frísins og samverunnar! -Arnhildur
Hafðu það gott. Mig langar svo mikið til að þú gefir Fríðu og Láka bloggslóðina mína. það væri gaman að fá frettir af þeim við tækifæri, og þau myndu líka skrifa komment og segja fréttir af Garðslofti. Eða Malla og Þorgerður myndu drífa í þessu? Annars að verða stressuð í tilefni af Danmarkdvölinni, ha,ha. Það tilheyrir :) Bestu kveðjur Ádda.
rosa gaman hjá áslaugu og fj hér í germaníu, stjanað við okkur allan daginn, búin að fara í skoðunarferð um nágrennið, búin að skreppa keyrandi til danmerkur í brúðkaup og komin hingað aftur. Förum til írlands 18 og verðum í þrjá daga síðan heim. Kv affí og elli
Takk kærlega fyrir okkur um daginn, kjúllasúpan var algjör snilld!
kv. Helga og Nesgengið
Hvernig er þetta með þig frænka sæl. Ég bið spennt eftir nýjum fréttum , en ekkert birtist á skjánum. Í dag er 1. september. Er það ekki góður tími til að hefja aftur skrifin :) Hvernig var það-- hittuð þið Aldísi Björns í saumakúbbi nýlega? Saknaðarkveðjur--og farðu í gang!!!!
Þín Ádda frænka.
Leti leti - áfram með þig kella... fyrst þú varst búin að koma þér inn í netrúntinn okkar ;)
Já hvernig er þetta með slúðrið fyrir sunnan? ekkert að gerast eða hvað? Þurfum eitthvað krassandi til að dreifa huganum síðan ormarnir fóru suður. Við Elli fáum örugglega nóg af hvort öðru, erum orðin hættulega náin.. eins og eftirfarandi gefur til kynna:: Elli ákvað að renna til pabba og mömmu, og ég hafði líka ákveðið að skreppa til pabba og mömmu, svo við ákváðum að renna saman.......
Kv affí
heheheh Affí snilli... fer alveg að blogga en þangað til verðið þið bara að skoða sumarfrísmyndir á barnanetinu :þ
Hvernig fór með þessa lóð? Voruð þið að skifta við einhvern? Já, líst ekki á þetta með Affí og Ella og óttast að við Klaus verðum ekki betri :) Hvað eru hjón án barna !:)
Hlakka til að heyra frá þér. Er ekki saumklúbbur bráðum, og fullt af fréttum þar. Eða slúðurssögum:)
Hafðu það gott, Ádda frænka.
Post a Comment